Steinsmýrarvötn
Steinsmýrarvötn er skemmtilegt fjögra stanga veiðisvæði í skaftárhrepp, rétt við Kirkjubæjarklaustur. Vötnin samanstanda af tveimur vötnum og svo lækjum sem renna á milli þeirra. Steinsmýrarvötn eru staðsett fyrir neðan bæinn Syðri – Steinsmýri og er göngufæri frá veiðihúsinu að vötnunum.
Í Steinsmýrarvötnum er staðbundin bleikja og urriði ásamt sjóbirtingi og sjóbleikju.frábær vorveiði er í vötnunum og eru sum hollin að fá allt upp í 80 fiska í holli.Í júní og júlí veiðist vel af urriða og bleikju, bleikjan er gríðarlega væn og meðalþyngd á henni hefur verið rúm 3 pund. Í ágúst byrjar svo sjóbirtingur að ganga og eru oft vænir sjóbirtingar 8-10 pund innan um.
Hægt er að kaupa leyfi með því að senda tölvupóst á steinsmyrarvotn@simnet.is eða síma 892 3318 / 4874849 . Einnig er hægt að kaupa veiðileyfi á www.leyfi.is . Leyfilegt agn í Steinsmýrarvötnum er fluga og spúnn, en mælst er til þess að menn veiði engöngu á flugu. Kvóti er á veiðinni, leyfilegt er að hirða 3 fiska á stöng á dag eftir það má veiða og sleppa.
Vilji menn koma með ábendingar um aðstöðu eða annað sem betur má fara til eigenda þá vinsamlega sendið það á netfangið steinsmyrarvotn@simnet.is
Verð á veiðileyfum 2012
Verð á stöng apríl, september og október er 12.100 kr.
verð á stöng maí, ágúst er 11.100 kr.
verð á stöng júní, júli er 9.100 kr.
.jpg)
.jpg)
í Steinsmýravötnum veiðist bæði sjóbirtingur, urriði og bleikja.
Heildarveið síðustu ára
Árið 2011 Veiddust alls 944 fiskar.
Árið 2010 Veiddust alls 1.100 fiskar. Árið 2009 Veiddust alls 1.162 fiskar. Árið 2008 Veiddust alls 835 fiskar. Árið 2007 Veiddustalls 843 fiskar.
Leiðarlýsing
Það eru rúmlega 250 kílómetrar úr Reykjavík að veiðisvæðinu og eru menn um 3 tíma að aka þangað frá Reykjavík. Ekið er sem leið liggur að kirkjubæjarklaustri og beygt til hægri niður Meðallandsveg (204) rétt áður en komið er að Skaftárbrúnni við Kirkjubæjarklaustur. Frá þeim gatnamótum er um 22 kílómetrar að Syðri –Steinsmýri. Meðallandsvegur er hringvegur og því einnig hægt að beygja fyrr inn á Meðallandsveg, austan við Kúðafljótsbrú , til hægri inn á Meðallandsveg( 204).
Veiðihús
Gott veiðihús fylgir Steinsmýrarvötnum , það er 40 fm2 + svefnloft og í því eru 2 herbergi með kojum og svefnloft með dýnum. Geta hæglega um 8 manns gist þar. Allt til alls er í húsunum eins og sturta, sjónvarp og gasgrill og er heitur pottur á pallinum og vöðlugeymsla í skúr fyrir utan.

Kort af Steinsmýrarvötnum
Slóði merktur með rauðum lit, liggur að veiðistað 1- 2. Við veiðistað 2 er bátur sem hægt er að fara á út á vatnið eða vaða yfir á aðra veiðistaði. Slóði merktur með grænum lit er jeppaslóði sem liggur að veiðistað 12 og stutt er að vaða þaðan á aðra veiðistaði.